Aalborg Portland
Vörur
Rannsóknir & ráðgjöf
Starfsmenn
Tenglar
 
 
 
 
 

 

Dreifingakerfi

 



Hala niður "ur_tankbil_i_silo.pdf"
Úr tankbíl í síló - hagnýtar leiðbeiningar
 

 
 
Laust sement kemur til Íslands frá sementsverksmiðju Aalborg Portland A/S í Danmörku. Það er flutt hingað til lands í allt að 6.000 tonna förmum, með sérbyggðum sementsskipum og er sementinu dælt frá skipi í síló. Farminum er landað í sementssíló okkar í Helguvík.

Bílafloti okkar, sem er sérútbúinn til flutnings á lausu sementi, annast flutningana frá birgðastöðinni í Helguvík til viðskiptavina okkar um land allt. Bílarnir fara allt að 1700km ferðir (til Austurlands og til baka) með laust sement og flytja um 33 tonn í hverri ferð.

Pakkað sement (Rapid-, Mester- og Whitesement) er afgreitt til viðskiptavina um land allt frá dreifingarmiðstöð okkar við Hólamið 6, skammt frá Helguvík. Flytjandi hf. sér um dreifinguna um landið. Hægt er að fá sementið í 25kg. eða 40kg. pokum og 1500kg. stórsekkjum. Flutningabílar okkar flytja einnig heilfarma af sekkjum og sementi í pokum á flatvögnum til viðskiptavina um land allt. 

Helstu smásöluaðilar okkar á pökkuðu sementi eru Múrbúð Steypustöðvarinnar við Malarhöfða í Reykjavík, Múrbúðin á Kletthálsi í Reykjavík auk nokkurra helstu byggingavöruverslana BYKO víða um land.

Aalborg Portland Íslandi býður viðskiptavinum sínum 33 tonna færanleg síló til afnota. Sílóin henta vel þar sem langt er til steypustöðvar og þegar verið er að nota mikið magn af sementi.

   


 
 
 
Aalborg Portland Íslandi ehf :: Skrifstofur: Bæjarlind 4 :: 201 Kópavogi :: Sími: 545-4800 :: Fax: 545-4805 :: aalborg@aalborg-portland.is
 
sitelist.html