 |
Framleiðsla á sementi í Danmörku hófst að einhverju marki um miðja 19 öld. Í dag er einungis ein verksmiðja enn starfandi og er það Aalborg Portland A/S í Rørdal við Álaborg á Jótlandi.
Upp úr 1880 bað Hans Holm, kaupmaður í Álaborg, æskuvin sinn og verkfræðing Frederik Læssøe Smidth frá Skive að reisa með sér sementsverksmiðju á norður Jótlandi. Fljótlega fundu þeir hentugt land í Rørdal, um 4 kílómetra norðaustur af Álaborg.
Hlutafélagið Aalborg Portland-Cement-Fabrik var stofnað þann 16. október 1889.
Þá, sem nú, var verksmiðjan í Rørdal vel staðsett, með greiðan aðgang að úrvals hráefni í formi kalks og leir ásamt því að vera vel staðsett gagnvart skipasamgöngum. Þetta á enn við í dag, hvort heldur varðar sölu innan Danmerkur eða útflutnings.
Á undanförnum árum hefur útflutningur á sementi aukist verulega og í dag er Aalborg Portland A/S stærsti útflytjandi í heimi á hvítu sementi. Fyrirtækið selur sement til yfir 70 landa.
Þann 22. september 2000 var sexþúsund tonna síló tekið í notkun í Helguvík. Í upphafi árs 2001 var opnuð skrifstofa að Bæjarlind 4 í Kópavogi. Sílóin á Reyðarfirði voru tekin í notkun þann 27. september 2005.
Fyrsta heila starfsár APÍ gekk vel. Félagið náði helstu markmiðum sínum, en árið 2001 seldi APÍ um 30 þúsund tonn af sementi. Íslendingar tóku sementinu frá Álaborg afar vel, eins og þeir höfðu gert í upphafi 20. aldar þegar Zimsen verkfræðingur hóf innflutning á sementi.
Ákvörðun var tekin um að byggja annað síló í Helguvík og var það tekið í notkun 17. september 2002. Með nýja sílóinu náðist fram aukin hagkvæmni í innflutningi, að ekki sé minnst á aukið öryggi í afhendingu sements. Þá var tekin í notkun vöruskemma við Hólamið 6 í Reykjanesbæ, skammt frá Helguvík. Þar fer fram afgreiðsla á pökkuðu sementi til viðskiptavina og dreifingaraðila.
Á árinu 2003 var uppbyggingu fyrirtækisins haldið áfram og meðal annars var fjárfest í blöndunarbúnaði fyrir kísilryk í sement, betri aðstöðu fyrir starfsmenn í Helguvík, færanlegum sílóum, sem nýtast starfsemi t.d. á landsbyggðinni, auk þess sem fjölgað var í bílaflotanum.
Í júní 2003 var gerður stór viðskiptasamningur við Steypustöðina og Loftorku, sem gerir það að verkum að Aalborg Portland Íslandi ehf er í dag leiðandi fyrirtæki á íslenskum sementsmarkaði.
|
 |