Aalborg Portland
Vörur
Rannsóknir & ráðgjöf
Starfsmenn
Tenglar
 
 
 
 
 

 

Aska /Fly Ash

 



Vegna takmarkaðs aðgangs að fínkornuðu steinefni á Íslandi, er algengt að auka sementsmagn til þess að mæta skorti á fínum steinefnum í steypu og múrblöndum.

Í sjálfútleggjandi steypu og fljótandi gólfílögnum þarf um og yfir 400 kg af fínefni/m³ (sement+fínkornuð steinefni), til þess að ná viðunandi vinnanleika steypunnar. Fyrir utan hátt fínefnamagn þarf vatnsmagnið að vera lágt, til þess að auka samloðun og forðast aðskilnað. Þetta allt hefur í för með sér lágt v/s-hlutfall, ef notað er eingöngu sement, og verður steypustyrkur og fjaðurstuðull mjög hár og steypan viðkvæm fyrir útþornun, með þar af leiðandi aukinni hættu á sprungum.

Til þess að ráða bót á ofangreindu er æskilegt að skipta hluta af sementinu út með fínkornuðu steinefni, eins og t.d. kalksteinsmélu eða svifösku.

Við framleiðslu á sjálfútleggjandi steypu er æskilegt að nota 15-35 % svifösku af bindiefnismagninu. Í fljótandi gólfílagnir er talið að 30-40 % svifaska sé æskileg í blönduna.

Virknisstuðull fyrir svifösku er 0,3 – 0,5, þ.e.a.s. að við útreikninga á v/s-tölu þarf að margfalda magn svifösku með 0,3 – 0,5 við útreikninga á jafngildu sementsmagni.

Auk augljósra kosta við notkun á svifösku í fínefnaríkum blöndum, er hægt að nota svifösku til lækkunar á hita í byggingarhlutum með stórum þversniðum, sem og til þess að bæta hæfni sementsrýrrar blöndu til dælinga.

Hala niður "flyvweaske_b5.pdf"
Nánar um innihald svifösku ( PDF skjal 0,02MB )
 

 
 
   


 
 
 
Aalborg Portland Íslandi ehf :: Skrifstofur: Bæjarlind 4 :: 201 Kópavogi :: Sími: 545-4800 :: Fax: 545-4805 :: aalborg@aalborg-portland.is
 
sitelist.html