 |
Kísilryk (SIO2) er örfínt ryk sem er blandað út í steypu, með það að markmiði að þétta hana, draga úr klórleiðni og alkalívirkni.
Við notkun á kísilryki eykst hins vegar vatnsþörf steypu, sem aftur getur aukið hættu á sprungumyndun. Nokkuð skiptar skoðanir eru um íblöndun kísilryks í steypu. Sumir telja að langtímaþol steypunnar geti minnkað. Almennt eru menn þó sammála um að kísilryk í minni skömmtum auki gæði steypu t.d. í söltu umhverfi.
Aalborg Portland Íslandi býður viðskiptavinum sem þess óska kísilryk frá Járnblendifélaginu - ELKEM á Grundartanga.
Í byrjun desember 2003 tók Aalborg Portland Íslandi í notkun nýjan og fullkominn blöndunarbúnað, sem tryggir einsleita blöndun kísilryks og sements. Viðskiptavinum býðst í dag kísilryk blandað saman við sement í samræmi við óskir þeirra.
|
 |