Mikilvægustu hráefnin við sementsframleiðslu eru kalk og sandur, sem eru brennd saman við háan hita.
Við höfuðstöðvar Aalborg Portlands A/S í Álaborg eru miklar kalknámur. Kalkið er talið vera um 70 milljón ára gamalt og hentar, vegna tærleika, vel til framleiðslu á mismunandi sementstegundum.
Kalkið er grafið úr jörðu með þremur sérútbúnum gröfum, sem hver um sig getur grafið upp allt að 1000 tonnum á klukkustund. Kalkið er flutt á færiböndum í verksmiðju. Sandur til framleiðslunnar er tekinn við sjávarsíðuna í grennd við verksmiðjuna.
Kalkið er leyst upp í vatni í stórum tönkum. Formalaður sandur er blandaður vatni. Eftir að kalk, sandur og vatn hafa blandast saman er efninu dælt í einn af ofnum verksmiðjunnar.
Í þar til gerðum búnaði (cyklon) blandast og þurrkast hráefnin og á um 30 sekúndum hefur efnið náð 1000 gráðu hita og er tilbúið til brennslu í tromlubrennara við 1.500 gráður á Celsíus. Eftir um það bil hálfa klukkustund hafa allar efnabreytingar átt sér stað og eftir kælingu er sementsgjallið flutt til geymslu.
Gjallið er fínmalað í sementskvörnum og er sementinu dælt í síló, uns það er selt laust eða sett í poka.
Allt framleiðsluferlið frá kalknámum til geymslu í sílóum er tölvustýrt og fullnægir ströngustu kröfum nútímans. Náið er fylgst með framleiðslunni með tölvustýrðum vélmennum sem tryggja gæði sementsins.
Mikilvægustu framleiðsluvörurnar eru BASIS

sement, RAPID

sement, MESTER

sement og hvítt AALBORG WHITE

sement. Þessar vörur eru hver um sig sérlega góðar til hinna mismunandi verkefna.